
Hagnýt lausn fyrir dreifistöðvar og tæknibúnað.
Veitu-stöðin var þróuð með það að markmiði að sameina gott vinnurými, sveigjanlega uppbyggingu og hagnýta aðkomu að tæknibúnaði í fyrirferðarlítilli byggingu.
Grunnhugmyndin.
Grunnhugmyndin var að hanna húsnæði undir tveggja spenna dreifistöð, með góðu vinnuplássi, sem væri samt undir 15 fm og því einungis tilkynningarskild fyrir byggingaráform. Þetta markmið hefur náðst með Veitu-stöðinni.
Uppbygging stöðvarinnar.
Sökkull er steyptur í tvennu lagi og boltaður saman. Veggir og þak eru úr límtréseiningum. Lúga/lok úr áli er á þaki sem má hífa frá og þannig hífa búnað inn í húsið. Veggir eru klæddir með klæðningu að vali viðskiptavinar.
- SökkullSteyptur í tvennu lagi og boltaður saman.
- Veggir og þakLímtréseiningar.
- ÞaklúgaLúga/lok úr áli — búnaður hífður inn í húsið.
- KlæðningAð vali viðskiptavinar.
Pláss og búnaður.
Stöðin rúmar vel 11 kV 2+2 felt, tvo lágspennuskápa/aflrofaskápa, og allt að tvo 1600 kVA spenna.
Einnig gæti verið hægt að setja einn 33/11 kV 2,5 MVA spenni og rofabúnað.
Einfalt að aðlaga.
Við hönnunina var lagt upp með að auðvelt yrði að laga húsið að öðrum rekstri sem það kynni að þjóna, og fella það vel að umhverfi sínu. Þannig er hægt að velja nánast hvaða klæðningu sem er á húsin svo þau séu í stíl við annað í nágrenninu, eða í einkennislitum fyrirtækja sem reka þau.
Dæla gæti staðið í „spennigryfju“ þar sem auðvelt væri að hífa hana niður í húsið.
Hægt er að skipta rýminu upp: veitufyrirtæki með sinn búnað aflokaðan innar í stöðinni og viðskiptavinur með móttöku- eða tæknirými að framan með sameiginlegan inngang.






Áhugi á útfærslu?
Segðu okkur frá verkefninu og við ræðum tæknilega útfærslu, klæðningu og næstu skref.