Skip to content
Pávers
ORKA • MANNVIRKI • VERKEFNASTÝRING

Verkefnastýring og lausnir fyrir orku og mannvirki.

Tæknileg verkefnastýring og lausnir fyrir orku og mannvirki — með reynslu úr verklegum framkvæmdum, rafdreifikerfum og tæknilegu umhverfi.

ÞJÓNUSTA

Þjónusta byggð á reynslu úr framkvæmdum.

01

Verkefnastýring

Pávers tekur að sér verkefnastjórn á ýmsum verkefnum bæði stórum og smáum. Verkefnastjórn er allt frá hugmynd, undirbúning, framkvæmd, skipulagningu, áætlanagerð og eftirlit með verkefnum. Útvega verktaka, halda utan um og stýra framkvæmd og fylgjast með verkinu.

02

Ráðgjöf

Pávers hefur yfirgripsmikla reynslu í verklegum framkvæmdum sérstaklega tengdum rafmagni. Áralöng þekking og reynsla við lagningu og rekstur rafdreifikerfa ásamt vinnu á lág- og háspennusviði. Pávers leitast eftir því að finna nýjar og hagkvæmar lausnir viðskiptavinum til hagsbóta.

03

Byggingarstjórn (flokkur 1)

Pávers getur tekið að sér byggingarstjórn í flokki 1. Byggingarstjóri er fulltrúi eiganda og starfar í hans umboði og sér um að teikningum og reglugerðum sé fylgt á verkstað. Byggingarstjóra I er heimilt að stjórna framkvæmdum við nýbyggingu, viðhald, breytingu, endurbyggingu og niðurrif mannvirkja sem eru allt að 2.000 m² að flatarmáli og mest 16 m að hæð.

04

Rafteikningar

Pávers hefur löggild hönnunarréttindi til þess að skila inn raflagnateikningum.

Veituhús — dreifistöð Pávers
01 · Veituhús
VEITUHÚS

Hús fyrir tveggja spenna dreifistöð undir 15 fm.

Hús fyrir tveggja spenna dreifistöð undir 15 fm og því einungis tilkynningarskilt fyrir byggingaráform. Grunnhugmyndin var að sameina gott vinnupláss, sveigjanlega uppbyggingu og aðgengi að tæknibúnaði í fyrirferðarlítilli byggingu.

UMHVERFI OG ÖRYGGI

Ekkert verk er svo mikilvægt að fórna megi öryggi fólks við framkvæmd þess.

Öryggismál

Pávers ehf. hefur það markmið í öryggis- og heilbrigðismálum að skapa slysalausan vinnustað þar sem enginn starfsmaður, verktaki eða almenningur bíður heilsutjón vegna starfseminnar.

Allir sem starfa fyrir Pávers ehf. eru ábyrgir fyrir eigin öryggi, eru talsmenn aukins öryggis síns og annarra samstarfsmanna sinna og leitast við að koma auga á, meta og stjórna áhættum í vinnuumhverfinu. Öryggis-, heilsu- og vinnuumhverfismál eru þannig óaðskiljanlegur hluti af allri starfseminni.

Umhverfismál

Pávers starfar í sátt við umhverfið og leggur sitt af mörkum til samfélagsins með því að vinna verkefni þannig að þau séu endingargóð bæði í efnisvali, nýtingar- og þróunarmöguleikum. Leitast er við að raska ekki umhverfi að óþörfu, gerist þess þörf er því skilað í sama eða betra ástandi en áður. Pávers leggur sitt af mörkum til þess að stuðla að orkuskiptum eins og kostur er.

Umhverfisstefna fyrirtækisins skal endurskoðuð reglulega með umbætur í umhverfismálum í huga.

UM PÁVERS

Um okkur.

Pávers vinnur að verkefnum þar sem tæknileg þekking, skipulag og verkleg framkvæmd þurfa að haldast í hendur — með áherslu á verkefnastýringu, ráðgjöf, byggingarstjórn og rafteikningar, og reynslu úr verkefnum tengdum raforku og rafdreifikerfum.

Nánari kynning á fyrirtækinu kemur síðar.

HAFA SAMBAND

Sendu okkur línu eða sláðu á þráðinn.

Segðu okkur frá verkefninu og við skoðum hvernig Pávers getur komið að því.